Opnun sýningarinnar og kynning á bókinni Frásagnir minninganna með Þórarni Eldjárn: 19. september 2013 á sal Þjóðarbókhlöðunnar, kl 15:00 – 17:00.
Veitingar: öl, kleinur og ástarpungar.
Sýning: 19. september til 3. október.
Opnunartími: mánud. - fimmtud. 8:15-22:00; föstudaga 8:15-19:00;
laugardaga 10:00-17:00; sunnudaga 11:00-17:00.
Sýningin „Frásagnir minninganna
með Þórarni Eldjárn“ gefur yfirlit yfir afrakstur fyrstu smiðjunnar á Íslandi
innan verkefnisins Listir og menning sem
meðferð við Alzheimers sjúkdómnum. Sú rannsókn beinist að meðferð við
Alzheimers sjúkdómnum án lyfja og er upprunnin frá Minnismóttöku Virgen de la
Arrixaca sjúkrahússins í Murcia á Spáni.
Listir og menning sem meðferð við Alzheimers sjúkdómnum: „Frásagnir minninganna með Þórarni
Eldjárn“ var skipulögð af Félagi áhugafólks og aðstandenda Alzheimers sjúklinga
og annarra skyldra sjúkdóma (FAAS) og Minnismóttöku Landakots. Smiðjan átti sér
stað á sal Landsbókasafnsins og naut samstarfs hins virta rithöfundar Þórarins
Eldjárns og 14 nemenda úr teiknideild Myndlistarskólans í Reykjavík.
Meðal markmiða þessa
samstarfs var að opna umræðuna um Alzheimers sjúkdóminn og athuga hvernig frásagnir
minninganna gætu sameinast vísindalegum rannsóknum og eigindlegu mati á
Alzheimers sjúkdómnum sem og gert mat á mikilvægi tilfinningakerfis
manneskjunnar sem þjáist af sjúkdómnum.
Frekari upplýsingar hér að neðan
og um verkefnið í heild sinn á vefsíðu:Art and Culture as Therapy
No hay comentarios:
Publicar un comentario